Skilmálar
Spilasetrið ehf.
Pósthólf 5, 602, Akureyri, Ísland
spilasetrid@spilasetrid.is
Spilasetrið ehf. áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis. Öll verð í vefverslun eru með inniföldum virðisaukaskatti.
Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og gefa upp um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og þar gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Spilasetrið ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Spilasetrið ehf. til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Heimsending á Akureyri
Frí heimsending er í boði innan Akureyrar (póstnúmer 600, 603) fyrir pantanir yfir 15.000 kr. Samdægurs ef pöntun berst fyrir 16:00.
1.000 kr. sendingargjald leggst á pantanir undir 15.000 kr.. Keyrt er út á virkum dögum milli 17-19. Ef pöntun berst eftir kl. 16 eða um helgi/frídegi þá er hún keyrð út næsta virka dag.
Sendingakostnaður
Við sendum allar vörur með Íslandspósti og eru þrír valmöguleikar fyrir viðskiptavini: Heim upp að dyrum, í Póstbox eða sent á pósthús Póstsins. Innheimt er fyrir sendingarkostnað í samræmi við það sem valið var við staðfestingu á vörukaupum.
Greiðsluleiðir
Í vefverslun okkar er hægt að greiða með kreditkortum frá VISA og MasterCard og debitkortum VISA Electron og Maestro með greiðslugátt hjá Rapyd.
Að skila vöru
Skilaréttur gildir í 14 daga frá kaupdegi. Vara verður að vera í sama ástandi og/eða í upprunalegum óskemmdum umbúðum. Viðskiptavinur ber kostnað af sendingu aftur til seljanda. Endurgreiðsla fer fram eins fljótt og hægt er eftir að vara skilar sér til seljanda og búið er að ganga úr skugga um að hún sé í upprunalegu ástandi. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar.
Gölluð vara
Sé vara gölluð áskilum við okkur þann rétt að kanna hvort hægt sé að bæta eða laga vöruna. Ef ekki er hægt að bæta eða laga umrædda vöru getur viðskiptavinur óskað eftir inneign eða endurgreiðslu. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
Öryggisskilmálar
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 46/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 hefjast þegar móttaka vöru á sér stað.
IP tala viðskiptavina er skráð við greiðslu vörupöntunar. Þær upplýsingar ásamt persónuupplýsingum og upplýsingum um vörukaup gætu verið notaðar í tengslum við lögreglurannsókn vakni grunur um sviksemi eða misnotkun greiðslukorta.
Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Norðurlands.
Lög um neytendakaup
Lög um samningsgerð
Lög um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu
Lögræðislög
Lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga